Göngum í skólann
Nú stendur yfir verkefnið „Göngum í skólann“ en markmið verkefnisins eru meðal annars:
- Hvatning til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.
- Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.
- Vitundarvakning um hversu „gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.
- Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál.
Verkefnið er alþjóðlegt og á síðasta ári tóku milljónir barna frá fjörutíu og tveimur löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum . Verkefninu lýkur formlega á alþjóðlega „Göngum í skólann“- deginum miðvikudaginn 8. október. Við í Akurskóla viljum hvetja nemendur til að vera dugleg og ,,ganga í skólann“  í allan vetur.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


