21. september 2026

Göngum í skólann

Göngum í skólann

Akurskóli tekur þátt í verkefninu Göngum í skólann, sem hefst miðvikudaginn 9. september og lýkur 7. október.

Markmið verkefnisins er að hvetja nemendur og fjölskyldur þeirra til að velja virkan ferðamáta í og úr skóla þegar aðstæður leyfa. Hægt er að ganga, hjóla, hlaupa, fara á hlaupahjóli eða ferðast með öðrum virkum hætti.

Í Akurskóla er keppt um gullskóinn á milli árganga. Keppt verður í þremur flokkum, 1.–4. bekk, 5.–7. bekk og 8.–10. bekk. Kennarar halda utan um þátttöku nemenda meðan verkefnið stendur yfir.

Við hvetjum alla nemendur til að taka virkan þátt og foreldra og forráðamenn til að styðja við verkefnið. Þetta er jafnframt gott tækifæri til að ræða við börnin um öruggar og virkar leiðir í skólann.

Nánari upplýsingar má finna á vef Göngum í skólann.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla