Göngum í skólann
Göngum í skólann er verkefni sem nemendur í Akurskóla hafa verið þátttakendur í undanfarnar vikur. Nemendur voru hvattir til að ganga eða hjóla í skólann þessar 4 vikur. Einnig voru þeir nemendur sem þurftu að taka strætó eða var skutlað af foreldrum hvattir til að fara út í einhverri vegalengd frá skólanum og fengu þannig skráð að þau hefðu gengið í skólann. Margir nemendur nýttu sér þetta. Nemendur voru mörg hver mjög dugleg við þetta verkefni. Í ár var veittur sérstakur gullskór sem var hannaður af smíðakennaranum okkar henni Jönu Maríu Guðmundsdóttir og á hún mikið hrós skilið fyrir flotta gripi. <br>Veittur var gullskór fyrir 1.sætið á hverju stigi.
<br>Sigurvegarar í ár voru:
<LI>Yngsta stig: Kópar (2-3.b)
<LI>Miðstig: Háhyrningar (4-5.b)
<LI>Unglingastig: Þrestir (8-9.b)
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


