28. maí 2010

Gróðursetning

Gróðursetning Nemendur í Akurskóla gróðursetja í nýjan reit

Það voru galvaskir nemendur  í Höfrungum, Hnísum og Háhyrningum sem gróðursettu fyrstu plönturnar í nýjan gróðurreit sem Akurskóli hefur fengið til ræktunar. Eins og fyrr er þetta verkefni unnið í samstarfi við samtökin Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs. Hinn nýi reitur er við sverðið í Innri- Njarðvík. Plönturnar eru sem fyrr merktar hverjum nemanda  svo þeir geti fylgst með vexti þeirra. Þegar nemendur koma á unglingastig er ætlunin að mæla vöxt trjánna og vonandi verðu þá hægt að sjá litinn trjálund. Við þökkum Birni Guðbrandi og Kristjáni Hreinssyni kærlega fyrir alla aðstoð. Þeirra framtak er ómetanlegt fyrir landið okkar. Sjá myndir í myndasafni hér til hliðar

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla