Gróðursettning hjá 4.-5.bekk
Nemendur í Háhyrningum,Hnísum, Hnúfubökum og Höfrungum gróðursettu plöntur í gróðurreitinn okkar við Rammahúsið í Innri-Njarðvík. Að venju voru það Björn Guðbrandur og Kristján Hreinsson frá samtökunum Gróður fyrir fólkið í Landnámi Ingólfs sem aðstoðuðu nemendur okkar við að planta og sá í moldarbarðið sem einkennir svæðið. Plönturnar fengum við hins vegar frá Yrkju. Í haust mæta þeir svo aftur og þá fá nemendur að mæla vöxt plantnanna eftir sumarið. Við þökkum þeim félögum kærlega fyrir aðstoðina en þetta er sjötta árið sem við njótum liðsinnis þeirra.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


