2. maí 2025

Guðdís Malín frá Akurskóla komst áfram í úrslit Pangeu

Guðdís Malín frá Akurskóla komst áfram í úrslit Pangeu

Í febrúar tóku nemendur úr 8. og 9. bekk Akurskóla þátt í stærðfræðikeppninni Pangeu. Keppnin er ein stærsta stærðfræðikeppni grunnskólanemenda á Íslandi og dró til sín 4689 þátttakendur frá 62 skólum um allt land, þar af 2289 nemendur úr 8. bekk og 2400 úr 9. bekk.

Eftir fyrstu umferð voru nokkrir nemendur boðaðir í aðra umferð, sem fór fram í mars, og eftir seinni niðurskurð hafa efstu 50 nemendur 8. bekkjar og 48 efstu úr 9. bekk verið boðaðir í úrslitakeppnina. Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Akurskóli á einn fulltrúa í úrslitakeppninni, Guðdísi Malínu Magnúsdóttur, nemanda í 8. bekk.

Við óskum Guðdísi Malínu alls hins besta og hlökkum til að fylgjast með henni á úrslitakeppninni sem fer fram þann 17. maí í Menntaskólanum við Hamrahlíð.

Við þökkum öllum nemendum sem tóku þátt í Pangeu og fögnum þeim árangri sem þeir hafa náð!

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla