Hæfileikahátíð grunnskóla Reykjanesbæjar haldin með glæsibrag

Hæfileikahátíð grunnskóla Reykjanesbæjar fór fram með pomp og prakt í Hljómahöll þann 6. maí síðastliðinn. Fjölmargir nemendur tóku þátt og sýndu fjölbreytta hæfileika sína á sviði tónlistar, leiklistar og dans.
Nemendur úr 3. bekk Akurskóla sýndu skemmtilegt atriði úr Fíasól sem vakti mikla lukku meðal áhorfenda. Atriðið var vel útfært og sýndi bæði sköpunargleði og leikræna hæfileika nemendanna.
Nemendur í 6. bekk voru sérstaklega boðnir á hátíðina sem áhorfendur og áttu fulltrúa á sviðinu en Atlas Logi og Heiðdís Klara voru kynnar fyrir hönd Akurskóla. Þau stóðu sig frábærlega í hlutverki sínu.
Hæfileikahátíðin hefur fest sig í sessi sem skemmtilegur og uppbyggilegur viðburður þar sem nemendur fá tækifæri til að láta ljós sitt skína og njóta að horfa á atriði frá öðrum nemendum í Reykjanesbæ.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.