5. maí 2026

Hæfileikahátíð grunnskólanna

Hæfileikahátíð grunnskólanna

Dagana 30. apríl til 10. maí er barna- og menningarhátíð Reykjanesbæjar, BAUN og af því tilefni er haldin Hæfileikahátíð grunnskólanna í Hljómahöll. Öllum nemendum í 6. bekk er boðið í Hljómahöll að horfa á atriðin en einnig er þeim streymt fyrir aðra nemendur í grunnskólum bæjarins. Hver skóli sýnir eitt atriði og voru það nemendur í 6. bekk sem voru fulltrúar Akurskóla. Þau sýndu atriðið sitt frá árshátíðinni sem var byggt á Lion king eða Konungi ljónanna. Stóðu þau sig stórvel og voru skólanum til sóma.

Einnig voru tveir nemendur frá unglingastigi sem voru sviðsmenn en það voru Andri Guðjón úr 9. bekk og Bergur Freyr úr 8. bekk. Þeir sinntu starfi sínu mjög vel og fá þeir þakkir fyrir.

Við hvetjum alla til að fara á viðburði á BAUN og er margt áhugavert og skemmtilegt á dagskrá.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla