Hafþór Orri í Örnum sigraði Rímnaflæði 2012
Keppnin Rímnaflæði fór fram föstudaginn 23.nóvember í sal Hólabrekkuskóla í Breiðholti. Þessi keppni var nú haldin í 14. Skipti og voru öll atriðin alveg frábær og um mjög jafna keppni var að ræða. Rímnaflæði hefur skipað sér fastan sess í dagskráliðum félagsmiðstöðva og vekur hún áhuga ungmenna á rappi og gefur rappi um leið jákvæða umfjöllun. Keppnin er fyrir krakka í 8.-10. Bekk.
Það var Hafþór Orri sem kom sá og sigraði ásamt vini sínum Ara Jónssyni frá Grindavík en þeir röppuðu og fluttu frumsamið lag eftir þá sjálfa sem heitir „Legðu við hlustir“. Strákarnir kalla sig Bjarnabófa. Hlusta má á lagið á vefnum youtube á þessari slóð: http://www.youtube.com/watch?v=9Bc_QRPGKVY
Við í Akurskóla óskum þeim piltum innilega til hamingju með þennan flotta sigur.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


