20. mars 2012

Hátíðarkvöldverður

Hátíðarkvöldverður

Foreldrar nemenda í 10. bekk buðu börnum sínum og starfsfólki skólans í glæsilegan hátíðarkvöldverð í gær, mánudaginn 19. mars. Salurinn var fagurlega skreyttur, allir voru prúðbúnir og kvöldið hið glæsilegasta í alla staði.  Sigurður Sigurðsson og Adam sonur hans voru veislustjórar og stjórnuðu dagskránni. Nemendur höfðu útbúið skemmtilega myndasýningu sem vakti mikla lukku. Þá talaði Sóley Þrastardóttir fyrir hönd nemenda. Halldóra aðstoðarskólastjóri flutti ávarp og Sólveig Silfá talaði til nemenda. Í lok dagskrár kynntu Lúlla og Þormóður tilnefningar nemenda og kvöldinu lauk svo með því að nemendur fóru á árshátíð 8.-10. bekkja grunnskólanemenda í Reykjanesbæ sem haldin var í Stapa.  Frábært kvöld í alla staði og þökkum við foreldrum kærlega fyrir glæsilegt kvöld.

Hægt er að skoða myndir í myndasafni

Herra Akurskóli var Adam

Ungfrú Akurskóli var Anita Rut

Bros Akurskóli var Magdalena Dröfn

Hlátur Akurskóla var Shani

Bjartasta vonin var Teitur Ari

Húmor Akurskóla var Ástþór Andri

Íþróttafrík Akurskóla var Sólveig Lind

Fatafrík Akurskóla var Magnea Guðný

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla