Hátíðarkvöldverður Arna í 10. bekk
Foreldrar nemenda í 10. bekk buðu börnum sínum og starfsfólki skólans í glæsilegan hátíðarkvöldverð þriðjudaginn 9. mars síðastliðinn. Salurinn var skreyttur, allir voru prúðbúnir og kvöldið hið glæsilegasta í alla staði.  Halldór Jón Hjaltason, fulltrúi foreldra, var veislustjóri og stjórnaði dagskránni en skólahljómsveit Akurskóla spilaði tvö lög, sýnd voru myndbönd og nemendur höfðu útbúið skemmtilega myndasýningu sem vakti mikla lukku. Þá talaði Sigurborg Lúthersdóttir fyrir hönd nemenda og Jónína Ágústsdóttir skólastjóri talaði til nemenda en þessi skemmtilega stund var síðan fest á filmu.  Kvöldinu lauk svo með því að nemendur fóru á árshátíð 8.-10. bekkja grunnskólanemenda í Reykjanesbæ sem haldin var í Stapa.  Frábært kvöld í alla staði og þökkum við foreldrum kærlega fyrir glæsilegt kvöld. Hægt er að skoða myndir í myndasafni.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


