4. október 2010

Haukur Karel Hauksson hlaut Rannís viðurkenningu

Haukur Karel Hauksson hlaut Rannís viðurkenningu

Í tilefni af Vísindaviku 2010 efndi Rannís til teiknisamkeppni þar
sem þátttakendur áttu að senda inn myndir út frá viðfangsefninu "Ef
ég væri vísindamaður". Keppt var í tveimur aldursflokkum 6-9 ára og
10-12 ára. Fjöldi mynda barst í keppnina en 5 hlutu viðurkenningu í
hverjum aldursflokki. Einn þeirra sem hlaut verðlaun í eldri flokknum
var okkar maður Haukur Karel Hauksson í Kríum og tók hann við
viðurkenningunni í Listasafni Reykjavíkur þann 24. september sl.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra afhenti verðlaunin sem voru
viðukenningarskjal og bókaverðlaun. Við óskum Hauki til
hamingju með þetta.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla