Heilsuvika í Reykjanesbæ
Nú er Heilsuvikan í Reykjanesbæ hafin og tekur Akurskóli að sjálfsögðu virkan þátt. Það verður Hreyfistund fyrir starfsfólk í hverju hádegi og verður þá boðið upp á vatnsleikfimi, blak, göngu, stöðvahring og fótbolta. Einnig verður farið í hjólaferð eftir vinnu. Skólamatur verður með sérstakan heilsumatseðil þessa vikuna og munu nemendur og starfsfólk njóta góðs af. Nemendur munu fara í útivistaferðir og verða fræddir um holla lífshætti. Starfsfólk Akurskóla mun einnig taka þátt í brennómóti sem fram fer í tilefni Heilsuviku og er að sjálfsögðu stefnt að sigri.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


