Heimsókn í Mjólkursamsölu Reykjavíkur
Mánudaginn 28. janúar var nemendum 3. bekkjar boðið í heimsókn í Mjólkusamsöluna til að fræðast um hvaðan mjólkin kemur, feril hennar í gengum verksmiðjuna og upplýsingar um það sem hægt er að búa til úr þessari frábæru afurð sem við erum að nota meira og minna alla daga.
Það var tekið mjög vel á móti nemendum. Hóparnir fengu sinn leiðsögumann til að fylgja sér um stöðina, fengu að fara inn í stæsta frysti landsins og svo varð þessi líka skemmtilegi töframaður á vegi þeirra.
Krakkarnir fengu líka innsýn í gamla tímann, þegar mjólkin var sett í brúsa og hún sótt á brúsapalla sveitabæjanna. Þau sáu líka gömlu áhöldin sem voru notuð til að vinna mjólkina á þeim tíma.
Í lok heimsóknarinnar var öllum boðið upp á mjólkurglas, kleinur, smákökur og íspinna. Það var ekki annað að sjá og heyra en krakkarnir hvafi verið ánægðir með heimsóknina og skólanum sínum til sóma.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


