Heimsókn í Reykjanesvirkjun
Nemendum 7. bekkjar var nýverið boðið í heimsókn í Reykjanesvirkjun, nýja virkjun Hitaveitunnar. Þar fengum við að skoða nýja sýningu þeirra sem heitir Orkuverið Jörð. Í sýningunni er farið í gengum hvaðan orkan kemur allt frá Miklahvelli til orkuvera nútímans. Sýningin er afar skemmtileg og nemendur skemmtu sér konunglega.
 
Við Suðurnesjamenn búum svo vel að hafa svona frábært verkfæri hér við bæjarhlaðið. Sýningin inniheldur gífurlegt magn upplýsinga sem hún jafnframt skilar frá sér á skemmtilegan hátt. Það er margt sem hægt er að snerta og fikta í sem fræðir sýningargestinn jafnvel án þess að hann taki eftir því.  Nemendur í 7. bekk þakka HS fyrir gott boð. 
 
Keppnin virkjum vísindi hjá unga fólkinu er 3. júní kl 13:30 og er það 7. bekkur sem tekur þátt að þessu sinni.  Nemendurnir ætla að búa til vistvænt orkuver.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


