Helga Lind ræddi við nemendur og starfsfólk um rafrænt einelti
Helga Lind Pálsdóttir félagsráðgjafi  heimsótti Akurskóla í gær og fræddi nemendur 6. – 10. bekkjar og starfsfólk skólans um áhrif rafræns eineltis.   Helga kynnti  helstu niðurstöður nýrrar rannsóknar sinnar á rafrænu einelti.  Rannsókninni var ætlað að varpa ljósi á hugarheim unglinga varðandi rafrænt einelti og leitast var við að fá fram og skoða mat unglinga á ástæðum og afleiðingum rafræns eineltis og hvort skilningur og mat stúlkna og drengja væri á einhvern hátt ólíkt.   Rannsóknin byggir á hópviðtölum við nemendur á unglingastigi í tveimur grunnskólum. 
Helstu niðurstöður benda til að unglingar hafi takmarkaðan skilning og þekkingu á rafrænu einelti. Að þörf sé á aukinni fræðslu og að nafnleyndin sem oft fylgir rafrænu einelti kunni að vera stór áhrifaþáttur og ein helsta ástæða þess að unglingar lenda í og/eða taka þátt í rafrænu einelti.  Nafnleyndin geri einnig að verkum að erfitt er að takast á við rafrænt einelti og afleiðingar þess.  Í rannsókn Helgu Lindar kom fram að vegna nafnleyndar geranda álitu unglingarnir í rannsókninni það bera lítinn árangur að leita aðstoðar fullorðinna í rafrænu einelti.  Töldu unglingarnir að þeir sem lenda í rafrænu einelti kjósi fremur að leita aðstoðar vina en fullorðinna, foreldra eða skólayfirvalda. 
Hjá Helgu kom fram að mikilvægt er að auka umræðu og fræðslu um rafrænt einelti, sérstaklega meðal ungmenna.  Einnig benti hún á mikilvægi þess að rafrænt einelti verði skilgreint verkefni og viðfangsefni í eineltisáætlunum í grunn- og framhaldsskóla.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


