6. október 2008

Hljóðsögur í 4.-5. bekk

Hljóðsögur í 4.-5. bekk

Nemendur í fyrstu smiðjunni hafa lokið við hljóðsögurnar sínar. Báðir hóparnir fengu það verkefni að semja sögu, búa til úr henni leiksýningu og hljóðsetja með hljóðfærum kennslustofunnar. Annar hópurinn samdi ógnvekjandi draugasögu um stúlku sem kemst að því að ekki er allt með felldu í húsinu hennar og hinn hópurinn samdi sögu um tvo stráka sem lenda í miklum og undarlegum ævintýrum.

Nemendur voru sendir heim með leyfisbréf til foreldra svo hægt væri að setja myndbandið á YouTube. Leyfin skiluðu sér ekki öll til baka og því verður farin varaleið.  Nemendur smiðjunnar geta komið til Styrmis tónmenntakennara með skrifanlegan geisladisk og fengið eintak af myndbandinu þannig.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla