9. febrúar 2009

Hljómsveitaræfingar á fullu

Hljómsveitaræfingar á fullu

Í tónmenntasmiðjunni núna er skemmtilegur hópur stráka sem hefur dembt sér út í það verkefni að æfa „Í útvarpinu heyrði ég lag“ með HLH flokknum. Þeir spila á rafmagnsgítara, kassagítar, trommusett, bassa og hljómborð auk þess að syngja og eru vægast sagt flottir. Afraksturinn ratar svo á samsöng eins og verkefni undanfarinna hópa.

Fyrri hópar hafa spilað Imagine og Let it be á föstudagssamsöng með 4.-7. bekk við stórgóðar undirtektir. Það verður gaman að sjá afrakstur núverandi hóps, enda fyrirmyndardrengir á ferð.

Fyrir þá sem vilja dilla sér við útgáfu HLH flokkins er hægt að smella hér.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla