Hnísur í heimsókn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Hnísur fóru í gær, fimmtudag, í heimsókn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Byrjað var á því að fara í tíma í leikrænni tjáningu hjá Jónu Guðrúnu Jónsdóttur, leiklistarkennara, en hún var jafnframt gestgjafi hópsins. Nemendur FS voru einnig þátttakendur í leiklistartímanum og vakti það mikla lukku hjá Hnísum að fá að æfa leiklistarhæfileikana með framhaldsskólanemendunum. Eftir frábæra leiktilburði og skemmtilegan spuna fengu Hnísur kynningu á þeirri starfsemi sem fram fer í Fjölbrautaskólanum. Meðal annars var myndlistastofan skoðuð sem og netagerðaverkstæðið, rafmagnsdeildin, smíðadeildin, hárgreiðsludeildin og fata og textíldeildin. Hnísur fengu einnig að fara í kennslustund þar sem iðnteikning var kennd og myndvinnsla í tölvu. Nemendur í Hnísum voru mjög áhugasamir um það sem fyrir augu bar og voru Akurskóla til sóma.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


