13. mars 2009

Hnísur í heimsókn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Hnísur í heimsókn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Í gær, fimmtudag, fóru Hnísur í heimsókn í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Nemendur skoðuðu flugstöðina, fóru í forsetarýmið, hittu fíkniefnahundinn Nelson og fengu síðan að kynnast starfsemi slökkviliðs flugvallarins og snjóruðningsdeild. Hnísur fengu höfðinglegar móttökur hjá starfsfólki flugstöðvarinnar og slökkviliðsins og þökkum við kærlega fyrir það. Heimsóknin var mjög fróðleg og skemmtileg og nemendur voru áhugasamir um það sem fyrir augu bar og Akurskóla til sóma. Hægt er að skoða myndir í myndasafni.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla