Hugsað um barn
Nýverið tóku nemendur í 9. bekk þátt í verkefninu Hugsað um barn. Hver nemandi fékk eina dúkku til að hugsa um og hafði hana yfir helgina, en á mánudagsmorgni skiluðu nemendur þeim af sér. Dúkkan er tölvustýrð og hermir eftir hljóðum og atferli ungbarna. Unglingurinn þarf að sinna "barninu" allan sólarhringinn og ekki er hægt að svindla því hann er með armband sem dúkkan bregst við og einnig skráir dúkkan niður allt sem gerist varðandi ummönnun hennar.
Unglingunum þótti þetta spennandi verkefni þó sumir kviðu fyrir. En þeir stóðu sig vel og höfðu gaman af þótt flestir væru þreyttir á mánudagsmorgni og sammála um að barneignir stæðu ekki til í nánustu framtíð.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


