Hvað ef - skemmtifræðsla
Mánudaginn 14. janúar fóru 8. og 9. bekkur á leikritið Hvað ef sem er í leikstjórn Gunnars Sigurðssonar. Hvað ef - skemmtifræðsla er leiksýning sem notast við leik, söng, ljóð og tónlist til fræðslu. Þar er á mjög nýstárlegan og skemmtilegan hátt farið yfir kaldar staðreyndir varðandi neyslu vímuefna, eineltis, sjálfsmorða og fleira.
Markmiðið er að sýna unglingum fram á að þeir hafi val og að sakleysislegar stundaráhrifsákvarðanir geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Það að reykja eina hasspípu eða vera í félagskap þeirra sem leggja stund á fíkniefnaneyslu getur hrundið af stað dapurlegri atburðarás. Það að segja já við E-pillu getur verið fyrsta skrefið á langri og miður fallegri ævisögu. Leikarar í leikritinu eru: Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Kári Viðarsson og Sara Margrét Nordahl. Að leiksýningunni lokinni fengu nemendur tækifæri á að ræða við leikaranna um leikritið.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


