2. febrúar 2022

Hvaðan ertu?

Hvaðan ertu?

Í dag fengu nemendur í 7. – 10. bekk fyrirlestur frá þeim Chanel Björk og Miriam Petru. Fyrirlestur þeirra var gagnvirkur og skemmtilegur og mátti sjá að þær vöktu nemendur til umhugsunar. Nemendur voru almennt ánægðir með þær stöllur. Þær fjölluðu um fjölmenningu, fordóma og rasisma. Umsjónarkennarar taka nú við boltanum og halda umræðunni áfram næstu daga. Við hvetjum foreldra til að nýta tækifærið og taka umræðuna heima fyrir.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla
denser.ai