Hvatningarverðlaun Fræðsluráðs
Nokkrir kennarar við Akurskóla hlutu tilnefningu til hvatningarverðlauna Fræðsluráðs Reykjanesbæjar sem veitt voru í gær. Tilnefningin er fyrir störf eða verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni. Þau verkefni sem voru tilnefnd til verðlauna eru: Byrjendalæsi, Olweus áætlun, Akurskjól, Flott án fíknar, bekkjarstjórnun og foreldrastarf. Á myndinni hér til hliðar má sjá þegar kennararnir veittu viðurkenningarskjölunum móttöku. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


