14. desember 2012

Ingibjörg Kr. Ferdinandsdóttir

Ingibjörg Kr. Ferdinandsdóttir

 

 

 

 

Ingibjörg Kr. Ferdinandsdóttir rithöfundur kom í heimsókn í dag og las upp úr bók sinni Leyndarmál Kela. Það voru nemendur 2.-5. bekk sem hlýddu á Ingibjörgu lesa um þennan sniðuga kött sem segir söguna að mestu leyti í bókinni. Keli köttur er jú einstakur og hefur frá mörgu að tjá og lúrir á ótrúlegu leyndarmáli sem enginn veit um, ekki einu sinni eigandi hans! Leyndarmál Kela er ætluð krökkum á aldrinum 6- 12 ára og er sjálfstætt framhald bókarinnar Keli minn sem hvarf sem kom út fyrir ári. Bókin um Leyndarmál Kela er á metsölulista Eymundsson. Við þökkum Ingibjörgu fyrir lesturinn.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla