12. maí 2009

Ísferð Akurskjóls

Ísferð Akurskjóls

Krakkarnir í frístundaskólanum Akurskjól hafa verið að vinna með kurteisi í starfinu undanfarin mánuð. Umbunakerfi var sett af stað og fengu krakkarnir stimpil í lok dags ef þau voru búin að vera kurteis. Þegar búið var að fylla spjaldið af stimplum fengu þau ís í verðlaun, en það var hann Magnúsi í Njarðvíkursjoppu sem bauð krökkunum upp á það. Á leiðinni heim í strætó ræddu krakkarnir um verðlaunin sem þau fengu og voru öll á þeirri skoðun að það borgaði sig að vera kurteis, því þá fengi maður ókeypis ís!!

Frábært framtak hjá eigendum Njarðvíkursjoppu og vilja krakkarnir í Akurskjóli þakka sérstaklega fyrir sig.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla