Jólabingó í Akurskóla
Mikil eftirvænting lá í loftinu sl. þriðjudagskvöld þegar jólabingó Foreldrafélags Akurskóla (FFA)fór fram. Fjöldi nemenda og foreldrar mættu á staðinn og margir fóru ríkari heim með flotta vinninga. Foreldrar og nemendur í 6. bekk sáu um bingóið og þökkum við þeim kærlega fyrir frábært bingó, sér í þeim foreldrum sem báru hita og þunga af því að skipuleggja bingóið og útvega 30 vinninga.
Jólabingóið er liður í því að styrkja Reykjaferð núrverandi 6.bekkinga á næsta ári. Reykjaferðin er á vegum foreldra sem bera kostnaðinn af ferðinni. Því er ekki seinna vænna en að byrja að safna. Skólinn styrkir ferðina með því að borga þeim kennurum laun sem fara með nemendum. Munum að margar hendur vinna létt verk J
Stjórn FFA
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


