29. nóvember 2013

Jólaföndur foreldrafélagsins

Jólaföndur foreldrafélagsins

Jólaföndur foreldrafélags Akurskóla verður föstudaginn nk., þann 29. nóvember kl.17-19. Allir árgangar skólans og foreldrar hittast saman og verður það í Akurskóla  Foreldrafélagið verður með til sölu jólaföndurpakka og munu þeir kosta frá 100 kr. – 400 kr. pakkinn. Við minnum á að við tökum ekki kort.

 

Það sem þið þurfið að koma með er, skæri, límstifti, liti (tússliti, tréliti, vaxliti), nál, tvinna og títuprjóna. Við munum bjóða upp á kaffi og er ykkur velkomið að koma með aðra drykki og jólasmákökur með ykkur.

 

Höfum gaman saman að föndra, hlusta á jólalög og gæða okkur á góðu kaffi og smákökum.

 

Munið bara hvað þetta var gaman þegar við vorum lítil.

 

Gleðilega aðventu

Stjórn foreldrafélagsins

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla