15. desember 2008

Jólamatur

Jólamatur

Á föstudag var boðið upp á jólamat í hádeginu. Kennarar þjónuðu nemendum til borðs og báru fram hangikjöt ásamt meðlæti en öllu þessu var skolað niður með jólaöli. Jólalög hljómuðu í matsalnum og setti það skemmtilegan blæ á þessa jólastund. Nemendur unglingastigsins notuðu tækifærið og þökkuðu Skólamat fyrir morgunmatinn, hafragraut og tilheyrandi, sem umsjónarkennararnir Þórdís, Hrefna og Þormóður höfðu frumkvæði af að bjóða nemendum í byrjun nóbvembermánaðar. Það var Fanný Axelsdóttir framkvæmdastjóri Skólamatar sem tók á móti jólakorti frá nemendum og er myndin hér til hliðar af Fannýju ásamt þakklátum nemendum.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla