Jólasýning Akurskjóls
Börnin í Akurskjóli buðu foreldrum sínum og vinum í heimsókn síðasta dag fyrir jól. Stelpurnar úr 1. bekk sýndu leikrit um Grýlu og Leppalúða með miklum tilþrifum. Eftir leikritið voru nokkrir skemmtilegir brandarar sagðir og að lokum sungu börnin nokkur falleg jólalög. Eftir að sýningu lauk buðu börnin gestum sínum kaffi og piparkökur sem þau höfðu bakað og málað. Gaman var að sjá hvað margir gestir sáu sér fært á að mæta og hafa gaman saman. Sjá myndir inn á myndasíðu Akurskjóls
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


