20. maí 2008

Kaffitár

Kaffitár

Þar sem kaffi hefur verið þjóðardrykkur Íslendinga frá byrjun 19.aldar og við í Akurskóla svo heppinn að vera með í skólahverfi okkar verksmiðjuna Kaffitár þá ákváðum við að fara í vettvangsferð þangað.  Nemendur voru svakalega spenntir enda hefur mikið verið rætt um Kaffitár og kennarar skólans verið tíðir gestir þar í vetur.

Við fórum í þremur stórum hópum og spennan allsráðandi í krökkunum. Kristbjörg, starfsmaður Kaffitárs, byrjaði á því að taka á móti okkur á sjálfu kaffihúsinu þar sem hún sagði frá sögu Kaffitárs. Nemendum fannst allt merkilegt sem hún sagði.

Kaffitár var stofnað árið 1990 með það að leiðarljósi að kynna Íslendingum fyrir ólíkum tegundum af úrvalskaffi. Nemendum fannst skrýtið að heyra að kaffi sé allt frá því að vera tært Kenýakaffi með sítrus keim að flauelsmjúku og þéttu Súmötrukaffi. Krakkarnir uppgvötuðu einnig að byggingin sem hýsir Kaffitár er ekki aðeins kaffihús heldur einnig kaffibrennsla. Erla, sem er yfir kaffihúsinu, var svo frábær að leyfa öllum nemendum í 5-6.bekk að smakka tvær tegundir af kaffi. Annars vegar frá Afríku og frá suður-Ameríku. Nemendum fannst þetta svakalega skemmtilegt og margir áttu ekki til orð yfir því að þetta væri það sem fullorðna fólkið væri að sækjast í. Einn nemandi sagði: "Mamma mín segir að dagurinn sé ónýtur án kaffibolla en ég verð nú að segja að minn dagur getur sko alveg verið án hans".

Kaffitár er vaxandi fyrirtæki sem hefur höfuðstöðvar sínar í skólahverfi Akurskóla. Okkur fannst kjörið að fara með nemendur og sýna þeim hvað væri að gerast í þessari byggingu og hvað væri að eiga sér stað í því hverfi sem Akurskóli er í. Á næsta ári langar okkur, í Akurskóla, að leggja meiri áherslu á grenndarnám þ.e. nám um sitt nánasta umhverfi. Grendarnám er ekki aðeins mikilvægt svo nemendur viti hvað sé að eiga sér stað í hverfi þeirra heldur fellst grendarnám í því að unnið sé með náttúru, sögu, örnefni og almennt umhverfi barna á sem fjölbreyttasta máta. Við í Akurskóla erum ekki aðeins heppin að því leytinu til að vera með alla þessa náttúru heldur teljum við okkur einnig vera heppin að vera með öll þessi fyrirtæki sem skipa stóran sess í viðskiptalíf okkar.

Við viljum þakka Erlu, Aðalheiði og Kristbjörgu kærlega fyrir að hafa tekið svona rosalega vel á móti okkur. Takk fyrir að hafa sýnt okkur starfssemi Kaffitárs og ekki síst takk fyrir þá fallegu gjöf sem þið gáfuð öllum. Þið eruð frábær.

Kærleikskveðja Sólveig Silfá, Freyr, Dísa, Jóka, Hrefna og Sigga.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla