Karen Dögg valin í landsliðshóp
Karen Dögg, okkar frábæri körfuboltaleikmaður í 10.bekk hefur verið valin í 12 manna landsliðshóp Íslands í körfubolta. Landsliðið er skipað leikmönnum 16 ára og yngri og hópurinn mun keppa á Norðurlandamóti sem haldið verður 8.-12.maí næstikomandi í Solna í Svíþjóð. Karen Dögg hefur æft körfubolta með Njarðvík í 8 ár og er mjög efnilegur leikmaður. Til gaman má geta að Karen var einnig í U-15 landsliðinu og fór til Danmerkur í fyrra. Við í Akurskóla óskum Karen innilega til hamingju sem og góðs gengis í Svíþjóð.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


