Karítas Lára
Sunnudaginn 29.janúar var sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna með tónleika í Eldborgarsal Hörpu. Um hundrað ungir hljóðfæraleikarar frá nokkrum tónlistarskólum fengu að spreyta sig með sveitinni og lögðu þeir hart að sér við æfingar ásamt tveimur kórum. Við í Akurskóla áttum fulltrúa á þessum stóra viðburði en Karítas Lára nemandi í 10.bekk fékk að sýna hæfileika sína fyrir fjölda áhorfenda. Karítas Lára hefur æft á Víolu í 6 ár og er frábær víoluleikari. Tónlistarlíf og annað menningarstarf auðgar andann og að fylgjast með Karítas Láru spila er hrein unun. Við í Akurskóla erum stolt af að eiga nemanda í fremstu röð ungra hljóðfæraleikara og hlökkum til þess að fylgjast með henni í framtíðinni
.jpg)
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


