Keppnin virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu
Keppnin virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu verður haldin í Akurskóla fimmtudaginn 14. maí kl. 13. Í ár taka 85 nemendur úr öllum grunnskólum Reykjanesbæjar ásamt nemendur Stóru Vogaskóla þátt í keppninni. Í ár eiga keppendur að hanna bát sem fer 9 metra vegalengd yfir sundlaugina í Akurskóla. Auk þess verður keppt í reiptogi og ýmsum eðlisfræði þrautum. Þetta er í þriðja skipti sem keppnin er haldin í Reykjanesbæ og er hér um að ræða samstarfsverkefni Reykjanesbæjar, Norðuráls og Hitaveitu Suðurnesja. Markmið í keppninni er fyrst og fremst að vekja athygli á raunvísindum. Þátttakendum verður boðið upp á skúffuköku í lok keppninnar í boði Skólamatar.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


