Kirkjuferð og jólamatur
Í dag var farið í kirkjuferð í Njarðvíkurkirkju. Þar áttu nemendur hátíðlega stund saman og sungin voru jólalög. Nemendur stóðu sig með prýði. Síðan var boðið upp á jólamat í hádeginu fyrir alla nemendur skólans. Nemendur voru dekraðir vegna þjónustu kennara, sem báru matinn á bökkum. Þetta árið fengum við  jólaöl, hangikjöt, rauðkál, grænar baunir, kartöflur og sósu. Í eftirrétt fengu svo allir ísblóm. Allir borðuðu vel og urðu vel saddir. Jólalög hljómuðu í matsalnum og setti það skemmtilegan blæ á þessa jólastund. Komnar eru myndir á myndasíðu.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


