Kirkjuferð og jólamatur
Í gær fóru nemendur Akurskóla í Njarðvíkurkirkju. Það var notalegt að sitja inni í kirkjunni okkar og hlýða á fallegan jólasöng og boðskap jólanna á meðan vetur konungur minnti á sig utan dyra. Hegðun og framkoma nemenda var svo sannarlega til fyrirmyndar og viljum við hrósa þeim sérstaklega fyrir það. Síðan var boðið upp á jólamat í hádeginu fyrir alla nemendur skólans. Sá siður hefur skapast að kennarar þjóni nemendum til borðs á þessum degi og kunnu nemendur greinilega vel að meta það og nutu matarins. Jólalög hljómuðu í matsalnum og setti það skemmtilegan blæ á þessa jólastund. Komnar eru myndir á myndasíðu.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


