Kökukeppni
Forvarnahópurinn Flott án fíknar hélt kökukeppni í gær og voru 13 kökur skráðar í keppnina. Keppnin hófst með kynningu á keppendum og kökunum þeirra. Síðan tók fjögurra manna dómnefnd til starfa og dæmdi kökurnar út frá bragðbesta kakan, girnilegasta kakan, hollasta kakan, fallegasta skeytta kakan og frumlegasta kakan. Allir keppendur lögðu mikinn metnað í kökurnar sínar eins og sjá má á mynd. Dómnefndin talaði um að það hefði verið mjög erfitt að dæma í þessari keppni þar sem allar kökurnar hefðu verið mjög bragðgóðar og  girnilegar á að lýta. Á meðana að dómnefnd tók saman stiginn fengu nemendur og aðrir gestir að njóta kræsinganna. Sigurvegar í keppninni voru: Eyjólfur Örn Auðunsson með hollustu kökuna, Berglind Björgvinsdóttir með best skreyttu kökuna, Sóley Þrastardóttir með girnilegustu kökuna, Tinna Ýr Jónsdóttir o g Aníta Ösp Ingólfsdóttir með frumlegustu kökuna og að lokum Alexander Haukur Erlingsson með bragðbestu kökuna. Verðlaun voru síðan veitt þeim sem unnu og viljum við senda kærar þakkir til þeirra sem lögðu okkur lið með vinningum sínum, en það eru Tjarnagrill, Ungó, Sambíóin í Keflavík, Hafdís Hafsteinsdóttir hárgreiðslumeistari og Birna förðunarmeistari. Allt voru þetta glæsilegir vinningar. Sjá myndir í myndasafni
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


