Kópar fengu heimsókn
Kóparnir fengu kærkomna heimsókn um miðjan desember en þá kom Eydís Mary Jónsdóttir, starfsmaður á Fræðasetrinu í Sandgerð. Krakkarnir höfðu verið að vinna með námsefnið komdu og skoðaðu hafið, þar sem verið var að vinna með lífríki hafsins og fjörunnar. Eydís fræddi þau heilmikið um þessi svæði, sýndi þeim myndbönd og skrýtna kuðunga og skeljar, þar var meira að segja sæhestur. En rúsínan í pylsuendanum voru tveir lifandi krabbar, eitt sæbjúga, krossfiskur og ígulker. Þetta var góður endir á þessu skemmtilega verkefni sem börnin unnu.
 
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


