Kræ-Beibí
Nemendur 7. og 8. bekkjar fórum um helgina á 50s söngleikinn Kræ-Beibí sem sýndur var í Austurbæ. Nemendamótsnefnd Verslunarskóla Íslands flutti verkið, sem var alveg frábærlega skemmtilegt. Söngleikurinn er byggður á kvikmyndinni Cry Baby frá árinu 1990, þar sem hinn sjóðheiti Jonny Depp fer með titilhlutverkið. Söngleikurinn Kræ- beibi fjallar um samfélag ungmenna sem skiptist í tvö gengi, Hnakka og Hyski. Hnakkar eru ímynd góðu krakkana sem gera lítið sem ekkert af sér og eru hinir fullkomnu unglingar. Hyskið  er hinsvegar gengi sem við gætum kallað glæpalýð eða vandræðaunglinga. Nemendur Akurskóla fóru með rútu og eru þeir sem fóru á söngleikinn voru sammála um að söngleikurinn var vel fluttur og með eindæmum góður. Þeir segja það öruggt mál að þeir munu fara á sýningu Verslunarskólans að ári.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


