Krakkarnir í hverfinu
Í dag sáu krakkarnir í 2. bekk forvarnarleikritið Krakkarnir í hverfinu, sem er leikþáttur þar sem brúður eru notaðar til að fræða börnin um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi. Fræðslan felst í því að brúðurnar ræða saman um það sem þær hafa lent í. Stefán segir vini sínum frá því hvernig mamma hans lamdi hann stundum fast og hvernig þau fengu svo bæði hjálp eftir að hann sagði kennaranum sínum frá því. 
Félagsráðgjafar frá FFR auk kennara voru viðstaddir sýninguna.
Brúðustjórnendur eru Hallveig Thorlacius og Helga Arnalds. 
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


