Krissi lögga kíkir í heimsókn
Í dag heilsaði Krissi lögga upp á nemendur í 1. bekk. Hann fræddi þau um hættur í umferðinni, mikilvægi hjálmanotkunar á hjólum og þess að klæðast litríkum fötum eða gulu vesti í umferðinni til að sjást betur, hvenær er í lagi að sitja í framsætinu o.fl . Krakkarnir voru mjög prúðir og hlustuðu af athygli.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.