18. september 2012

Krissi lögga kíkti í heimsókn í 1. bekk

Krissi lögga kíkti í heimsókn í 1. bekk

Krissi lögga kom í heimsókn í dag og fræddi hann nemendur um hvað þarf að varast á leiðinni í skólann, hvernig maður gengur yfir götu, nota umferðarljós ef þau séu til staðar og hvernig nota á endurskinsmerki. Einnig ræddi hann um nauðsyn þess að nota reiðhjólahjálma og mikilvægi þess að þeir séu rétt settir á og rétt stilltir. Til að undirstrika mikilvægi hjálmsins sýndi hann þeim ósoðið egg sem hann setti í þar til gerðan frauðplast hjálm og lét detta í gólfið annars vegar í hjálminum og hins vegar án hjálmsins. Nemendum brá mikið þegar eggið skall óvarið í gólfið og slettist út um allt og voru allir sammála um að nota alltaf hjálminn þegar þeir eru úti að hjóla. Einnig sýndi hann þeim handjárnin, piparúðann og kylfurnar sínar.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla