19. maí 2010

Krufning á svíni hjá 6-7 bekk

Krufning á svíni hjá 6-7 bekk

Mannslíkaminn er námsefni 6. og 7. bekkjar í líffræði. Þar læra nemendur um líkama mannsins og líffæri hans í máli, myndum og fleira.  Við lok bókakennslunnar tók verkleg kennsla völdin og brjóstholslíffæri úr svínum  sett á borðin.  Nemendur fengu að skoða, snerta, kryfja, rannsaka og skera niður í búta og þótti flestum það ekki leiðinlegt.  Í boði var að sjá lungu, lifur, hjörtu, nýru, þind, vélinda, barkakýli, slagæðar, bláæðar, hvolf, gáttir, lokur, barkar, berkjur og lungnablöðrur.  Tilraunir  voru gerðar með upplæstri á lungum, sýni voru tekin og skoðuð nánar og líffærin krufin til frekari skoðunar.  Með þessum kennsluhætti fá nemendur tækifæri til þess að skoða, læra og ígrunda með eigin athugunum og tilraunum. Það er mat okkar að þessi kennslustund hafi tekist rosalega vel og mikið situr eftir. Einn nemandi sagði við lok krufningarinnar “þetta er það skemmtilegasta sem ég hef gert í allan vetur.”

Hægt er að skoða myndir  á myndasíðu

Kveðja Ella Sigga, Freyr og Sólveig

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla