4. júní 2012

Kveðjustund Jónínu

Kveðjustund Jónínu Á föstudaginn var Jónína Ágústsdóttir skólastjóri kölluð á sal þar sem nemendur og starfsmenn vildu fá að kveðja hana með stuttri athöfn. Lovísa námsráðgjafi hélt stutta ræðu fyrir hönd starfsfólk skólans þar sem hún þakkaði henni fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum árum og óskaði henni um leið gæfu í hennar nýja starfi sem skólastjóri Breiðholtsskóla. Fyrrverandi aðstoðarskólastjórarnir þau Lars Imsland og Dröfn Rafnsdóttir komu og voru viðstödd athöfnina. Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri kom og sagði nokkur orð, einnig afhenti hann Jónínu blóm fyrir hönd Akurskóla. Sólveig Lind Magnúsdóttir nemandi í 10.bekk Akurskóla hengdi síðan borða á Jónínu þar sem á stóð drífandi, kraftmikil og jákvæð. Að lokum færði Sóley Margeirsdóttir Jónínu gjöf fyrir hönd starfsmannfélags Akurskóla..
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla