Kynning á sjávarútvegi
Kynning fyrir skóla er verkefni sem hefur það að markmiði að efla meðvitund og vekja áhuga á sjávarútvegi hjá nemendum í 10 bekk í grunnskóla. Borið hefur á miklu áhugaleysi í garð sjávarútvegsiðnaðarins hjá nemendum á bæði grunnskóla- og framhaldsskólastigi og er þetta því liður í að snúa því við til að stuðla að auknum áhuga ungs fólks að öllu sem viðkemur sjávarútvegi.
Hugmyndin er sú að útbúa kynningu sem höfðar til grunnskólanema og opnar augun fyrir því hversu stór iðnaður sjávarútvegurinn er. Fjalla um mikilvægi hans og uppruna, sýna krökkunum tösku fulla af afurðum úr fiski sem fáir vita að eru framleiddar á Íslandi og fá þau að meðhöndla þessar vörur.
Þetta kveikir áhuga þeirra og opnar þeim sýn á starfsleiðir tengdar þessum iðnaði sem margir gera sér ekki grein fyrir að séu til. Á því sviði er ætlunin að útbúa myndband um fólk sem vinnur í sjávarútveginum og einnig í greinum tengdum sjávarútvegi eins og til dæmis lyfja-og efnaframleiðsla, líffræði, verkfræði og tölvunarfræði þannig að þau geri sér grein fyrir hversu víðfeðm áhrif þessa iðnaðar eru í okkar samfélagi.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


