Kynning á vali
Mánudaginn 11. maí verður kynning á valgreinum fyrir 9. og 10. bekki skólaárið 2009-2010.  Nemendur fá valbækling í hendur föstudaginn 8. maí ásamt valblaði en einnig má nálgast þessi gögn á heimasíðu skólans. Hanna María Kristjánsdóttir kennslustjóri Fjölbrautaskóla Suðurnesja mun kynna þann hluta sem snýr að valgreinum í FS. Kynningin fer fram á sal skólans kl. 8.10-9.00.
Kveðja, stjórnendur
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


