25. nóvember 2008

Kynning á WIKI verkefni...

Kynning á WIKI verkefni...

Nemendur hafa verið að vinna svokölluð WIKI verkefni undanfarið en það fellst í því að skrifa fræðilega grein út frá heimildum á veraldarvefinn. Verkefnið er samþættingarverkefni þar sem unnið er með nokkrar námsgreinar á sama tíma. Í þessu tilfelli er það landafræðin ásamt upplýsingatækni og íslensku (ritun og framsögn).

Miðvikudaginn 26. nóvember klukkan 8:10 munu nemendur kynna verkefni sín sem þau hafa unnið að í upplýsingatækni það sem af er vetri.

Ykkur er boðið sérstaklega til að fylgjast með þessari kynningu og skoða afrakstur vinnu þeirra. Áætlað er að kynningin standi í u.þ.b. klukkustund.

Kær kveðja


-Rósa, Þórdís og Hrefna

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla