Kynning á WIKI verkefni...
Nemendur hafa verið að vinna svokölluð WIKI verkefni undanfarið en það fellst í því að skrifa fræðilega grein út frá heimildum á veraldarvefinn. Verkefnið er samþættingarverkefni þar sem unnið er með nokkrar námsgreinar á sama tíma. Í þessu tilfelli er það landafræðin ásamt upplýsingatækni og íslensku (ritun og framsögn).
Fimmtudaginn 27. nóvember klukkan 8:10 munu nemendur kynna verkefni sín sem þau hafa unnið að í upplýsingatækni það sem af er vetri.
Ykkur er boðið sérstaklega til að fylgjast með þessari kynningu og skoða afrakstur vinnu þeirra. Áætlað er að kynningin standi í u.þ.b. klukkustund.
Kær kveðja
-Rósa, Freyr, Sólveig og Elín Rós

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


