Kynning Rannsóknar og greiningar fyrir forráðamenn nemenda í 10. bekk
Við gerum nú aðra tilraun til að koma á kynningu Rannsóknar og greiningar með forráðamönnum 10. bekkinga en við urðum því miður að fresta fundi í síðustu viku vegna veikinda fyrirlesara.
Miðvikudaginn 1.júní, kl. 8:10 verður kynningarfundur fyrir forráðamenn nemenda í 10. bekk Akurskóla.  Jón Sigfússon frá Rannsókn og greiningu kynnir niðurstöður úr könnunum sem lagðar hafa verið fyrir nemendur á skólaárinu.  Einnig fjallar hann um þær breytingar sem eru framundan hjá nemendum. Fyrstu ölvunina og neyslumynstur barna eftir að grunnskóla lýkur, undirbúning og viðbrögð foreldra.  Við hvetjum ykkur til að mæta vel á fundinn.
                    Skólastjórnendur og umsjónarkennari
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


