Látum drauminn rætast!
Þorgrímur Þráinsson heldur fyrirlesturinn "LÁTTU DRAUMINN RÆTAST" fyrir foreldra nemenda í 8.-10.bekk í Grunnskólum Reykjanesbæjar.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þriðjudaginn 11.febrúar kl.20:00.
Þorgrímur hittir nemendur í 10.bekk dagana 7. - 14.febrúar í sínum heimaskólum. Þorgrími hefur verið tekið fagnandi af nemendum og gefur okkur foreldrum nú tækifæri til að heyra hvað hann hefur fram að færa. "Fyrirlesturinn er fyrst og fremst hvatning til nemenda um að bera ábyrgð á eigin lífi og hafa hugrekki til að fylgja hjartanu. Ég segi sögur því til stuðnings." segir Þorgrímur.
Kæru foreldrar tökum vel á móti Þorgrími Þráinssyni og fyllum salinn. Við lofum ánægjulegri kvöldstund. FFGÍR Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ
Kær kveðja
FFGÍR (Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ)

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.